Færsluflokkur: Bloggar
31.5.2007 | 18:01
LOKSINS!
Loksins loksins! Við erum búnar!!!!!
Við kláruðum myndasýninguna í gær eins og stendur í blogginu okkar en núna erum við einnig búnar með þessaða bók! Ég og Erna mættum á tilsettum tíma klukkan hálf tíu, en Fríða svaf "óvart" yfir sig
!!!! Nei ég er að stríða þér Fríða mín
!!! Hún svaf yfir sig, eins og við Erna höfum gert líka síðustu tvo morgna!
En hey, við erum nú bara mannlegar
En við Erna fórum upp á bókasafn og byrjuðum og það leið ekki langur tími þangað til að Fríða kom og gekk til liðs við okkur
Við röðuðum upp öllum textunum og myndunum í bókinni. Við kláruðum forsíðuna sem er snilld ,,by the way..."
En þegar við vorum að klára þetta kemur ekki Hófí niður stigann og segir okkur að einkunnirnar úr samrændu eru komnar Við frjósum en förum svo upp stigann til þess að fá að vita okkar tölur
Við gerðum það og okkur gekk öllum prýðilega!!!!!
Eftir gott spennufall, var reynt að halda áfram en vegna áfalls ákváðum að taka okkur frí að renslinu sem var klukkan hálf eitt. Við fórum í mat og fórum svo í prufuna sem gekk bara mjög vel, ekkert vesen með tölvuna! Eftir renslið prentaði Maríella út bókina og Kristján Inga setti gorma í og Guðrún skoðaði hana!
Ég vil nota tækifærið og þakka öllum kennurunum fyrir alla hjálpina
En núna er Erna í inntökuprófi í dansi við hugsum mjög fallega til hennar og höfum engar áhyggjur af henni og vona að hún sjái sér fært til að mæta og dansa meira á ballinu á eftir!!!
Því ef ekki mun ég í alvörunni fara að gráta
!!! og síðan hefna mín!
En ég hef þetta ekki lengra í dag! Takk fyrir mig! Ágústa Ebba
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.5.2007 | 17:54
Erum að klára!
Blessuð!
Það var ætlunin að hittast klukkan 9 eins og venjulega en eins og gengur og gerist hjá venjulegu fólki þá slökkti ég á vekjaraklukkunni minni eftir að hún var búin að hringja og ég vaknaði ekki fyrr en klukkan 9:00!!!
En þetta bjargaðist, ég hljóp inn í samtal við Guðrúnu þegar ég kom! Þær voru heldur ekkert byrjaðar!
Nei ég er að grínast!
Við unnum í litla kósý herberginu okkar og komum miklu í verk. Við löguðum uppsetninguna og alls kyns smáhluti sem þurfti að laga. T.d. laga skriftina, stærðina og litina í textunum eða raða myndunum rétt svo þær passa við lagið sem er spilað undir. Loksins, loksins, náðum við að klára alla myndsýninguna!!!!! En ekki fagna of fljótt!
Við þurfum samt líka að gera vara verk, ef tölvurnar myndu hrynja eða eitthvað myndi gerast þá þýðir ekki að standa tómhentar upp á sviði!!!
Nei nei! Núna erum við að gera bók! Hún á að innihalda allt efni sem við höfum gert á þessum tíma! Við byrjuðum á henni í dag og erum komin frekar lang á veg með hana en eigum eftir að prenta hana út og gera umgjörð og setja gorma á hana. En allt þetta ætlum við að gera á morgun.
Ég ætla nú bara að fara að segja þetta gott í bili. Við bloggum á morgun líka, heyrumst þá!
Ágústa Ebba
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2007 | 00:47
Stutt, létt & laggott =)
Hæ hæ
Hittumst í dag kl. 10:00 ...(ég svaf reyndar ÓVART yfir mig, en mætti bara svona 10 mín of seint
) Við fórum í tölvustofuna og bjuggum til skýrslu sem við eigum að skila á morgun.
... Við náðum að klára hana og fórum svo upp í stofuna, sem við höfðum verið í fyrir nokkrum dögum að taka upp, og lagfærðum aðeins verkefnið okkar.
Þar þurftu tvær ,,ónefndar" Fríða *hóst* og Ágústa *hóst*
að laga & taka aftur upp...
En það gekk
mjög vel.
Eftir það fórum við í mat og komum svo aftur upp í skóla og héldum áfram. Við bættum inn inngang í styttu sýninguna okkar og löguðum smávægis hluti. Við löguðum tímann aðeins á hverri mynd og hvernig hún myndi fljúga inn, ef svo má segja.
... Það gekk bara vel og við fórum eitthvað um rúmlega þrjú leytið.
Hef það ekki lengra í dag...nótt ... Þannig að planið er að hittast á morgun kl. 9:00
Bestu kveðjur, Erna Rós
...Hér eru nokkrar myndir sem ég fann á www.google.com, því ég er bara hér heima að blogga og er ekki með neinar skemmtilegar myndir
Vatnsberinn
Sæmundur á selnum
Jón Sigurðsson
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.5.2007 | 15:51
Enn styttra eftir !
Hæ hæ..
Í dag hittumst við kl. 9 og fórum upp á bókasafn. Þar ætluðum við að setja inn hljóð en það voru of mikil læti þar til þess að taka upp. Við fórum þá í tölvu í einhverri stofu þar sem var algjört næði . Við töluðum inn á verkefnið og það tókst bara mjög vel
. Um klukkan hálf eitt fórum ég og Erna heim til mína að borða en Ágústa þurfti að fara eitthvert. Þegar við vorum búnar að borða fórum við aftur upp í skóla og lagfærðum verkefnið eitthvað, en Ágústa kom aftur upp í skóla um hálf tvö
. Við röðuðum myndunum í þá röð sem við ætlum að hafa þær og með hjálp Guðnýjar tölvukennara settum við styttur bæjarins lagið inn á verkefnið
.
Verkefnið er nú bara næstum tilbúið en við klárum það líklegast á þriðjudaginn . Ótrúlegt en satt þá ákváðum við að hittast kl. 10 á þriðjudaginn en ekki kl. 9
.
- Fríða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.5.2007 | 14:47
Stutt eftir (A)
Góðan og blessaðann daginn!
Getiði hvað? Við mættum klukkan níu
! Fórum svo í tölvur og unnum í verkefninu
. Guðrún kom, sá og sigraði!
...Neeeiii, bara pínu flipp
Hún kom bara og sá hvað við vorum búnar að gera hingað til.
Dagurinn fór nú mikið í að eyða myndum og skipuleggja myndasýninguna
Við urðum voðalega svangar og fórum og fengum okkur langloku, samloku og auðvitað möffins í hádeginu!
Eftir hádegið komum við aftur upp í skóla og styttum nokkra texta og unnum áfram. ...
Erna er að fá sykurfall og Fríða er að setja texta á myndirnar og skipuleggja röðina á þeim
!
Núna er Erna BÚIN í sykurfallinu og er auðvitað að vinna
Þetta er allt að koma og það er farið að sjá fyrir endann á þessu ! Við ætlum bara að vera geðveikt duglegar og reyna að klára þetta á morgun, það er nú samt frekar óraunhæft
, en við reynum eins og við getum að klára þetta sem fyrst
!!!
Ætlum ekki að hafa það lengra í dag ...
Bestu kveðjur,
Erna Rós, Ágústa Ebba & Fríða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 15:17
Innipúkar
Buenos Dias!!!
Í dag hittumst við klukkan 9 eins og vanalega. Við fórum beint upp á tölvustofu, þar fórum við allar í sitthvora tölvuna og unnum úr textunum um stytturnar
. Ágústa hljóp heim til sín til þess að ná í myndir úr sinni myndavél. Hún hélt að það hafði tekist en allt kom fyrir ekki henni til mikillar skapraunar
! Við hringdum marg oft í Ríkisútvarpið til þess að geta nálgast gamlan útvarpsþátt um styttur bæjarins, en alltaf svaraði einhver kona sem var ekki beinlínis hjálpsöm
!! Um tólf skelltum við okkur niður í Grímsbæ og keyptum okkur gotterí
!
Fórum aftur upp í skóla um eitt og héldum áfram að vinna í tölvunum. Við unnum úr viðtölunum og úr efni um Ásmund Sveinsson . Erna fór um tvö
JEH!!! Nei bara grín! Hún er að fara að sýna á danssýningu. Við vonum að henni gangi sem allra best
.
Nú erum við búin að vera að vinna meira úr efninu og á morgun ætlum við að reyna að taka upp hljóðupptöku . Núna ætlum við heim til Ágústu til þessa að reyna að ná í myndirnar sem eru í tölvuni hjá henni.
Adios, Ágústa y Fríða .
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.5.2007 | 15:11
Styttur bæjarins, sem enginn nennir að horfa á =/
Guten tag ...
Í dag vörum við BARA í tölvum...Við byrjuðum á að setja inn texta og myndir inn á Power Point
, en þá kom Guðný tölvukennari og benti okkur á mjög gott forrit sem heitir Photo Story 3
, sem hentar okkar verkefni MIKLU betur en Power Point
.
Við ákváðum því að prófa að setja verkefnið í það og það reyndist vel ! Við ætlum að nota það og vonandi gengur það vel
Við ætlum að sýna myndir og taka upp texta, svo á það bara að rúlla
...
Við bættum við fullt af texta, endursögðum hann og færðum myndir yfir á forritið Photo Story 3
Við vorum geðveikt duglegar
EKKI má gleyma að Ágústa FÓR frá okkur og við ÞURFTUM að vinna í verkefninu í a.m.k. klukkutíma í viðbót ... EN hún er að fara sýna á danssýningu og spila á tónleikum... vonandi gengur henni sem ALLRA best
Erna und Fríða
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2007 | 15:41
Tölvudagur!
Við hittumst klukkan 9 eins og vanalega upp í skóla. Við gengum upp á bókasafn til þess að fá tölvur. Við settumst allar í sitthvora tölvuna og byrjuðum að vinna. Ég setti inn á tölvuna upplýsingarnar um Ásmund frá því í gær inn á tölvuna og Erna og Fríða settu öll viðtölin inn! Við leituðum á netinu að upplýsingum um tilteknar styttur og höfunda en það ekki alls ekki eins og við höfðum ímyndað okkur að það yrði! Við byrjuðum líka á sýningunni með því að setja inn myndirnar sem við höfum tekið.
Í hádeginu fórum við heim til mín og fengum okkur ristað brauð! Eftir hlé þá fórum við heim til Fríðu en áttuðum okkur svo á því að við værum að verða of seinar í myndatöku fyrir árbók skólans sem aðrir nemendur eru að gera
. Síðan eftir bekkjarmynd voru teknar einstaklings myndir sem voru mjög skemmtilegar! Vonandi verða þær allt í lagi því maður missti sig algjörlega í þeim
en það er bara skemmtilegra!
Eftir myndatöku blogguðum við og unnum meira í tölvunum! Ætlum að halda áfram með sýninguna og hafa gaman.
Ágústa Ebba
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.5.2007 | 15:23
Heimsókn í Ásmundarsafn
Í gær var opið hús í Ásmundarsafni í tilefni afmæli Ásmundar Sveinssonar. Við létum það ekki framhjá okkur fara og skelltum okkur niður í Laugardal þrátt fyrir slæmt veður. Við vorum bara tvær, ég (ágústa) og Erna því Fríða hafði skroppið upp í sumarbústað yfir helgina. Þegar mamma hennar Ernu hafði skilið okkur eftir aleinar fyrir framan safnið þá gengum við upp að hóp sem var að fara að fara út að ganga um garðinn og fræðast um stytturnar í honum og söguna á bak við þær. En það kom okkur frekar á óvart hvað fólki var brugðið að sjá svo ungar stelpur á myndlistarsafni!
! Það sýnir hvað fólk setur mikinn stimpil á unglinga! Ef þú ert yngri en 18 ára átt þú ekkert erindi á safn eða enhverja aðra fræðslustofnun. Þú átt að vera úti og eyðileggja verkin í staðinn fyrir að fræðast um þau!!!! Þetta er óásættanlegt!
Við gengum um garðinn og konan sem stýrði hópnum fræddi okkur um valin verk. Eftir kynninguna fórum við Erna annan túr og tókum myndir af styttum. En eftir þessa stund úti í þessu hrillilega veðri var komin tími á að fara inn! Við gengum stuttan hring inni í safninu og skrifuðum niður upplýsingar um Ásmund. En síðan skelltum við okkur í sund í Laugardalslaugina, enda nýtur maður rignar miklu betur þegar þú ert þegar blaut! Eftir stutt spjall í heitapottinum var splæst á pulsur í Skalla og tekið síðan Strætó heim! Ágústa Ebba
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)