30.5.2007 | 00:47
Stutt, létt & laggott =)
Hæ hæ
Hittumst í dag kl. 10:00 ...(ég svaf reyndar ÓVART yfir mig, en mætti bara svona 10 mín of seint
) Við fórum í tölvustofuna og bjuggum til skýrslu sem við eigum að skila á morgun.
... Við náðum að klára hana og fórum svo upp í stofuna, sem við höfðum verið í fyrir nokkrum dögum að taka upp, og lagfærðum aðeins verkefnið okkar.
Þar þurftu tvær ,,ónefndar" Fríða *hóst* og Ágústa *hóst*
að laga & taka aftur upp...
En það gekk
mjög vel.
Eftir það fórum við í mat og komum svo aftur upp í skóla og héldum áfram. Við bættum inn inngang í styttu sýninguna okkar og löguðum smávægis hluti. Við löguðum tímann aðeins á hverri mynd og hvernig hún myndi fljúga inn, ef svo má segja.
... Það gekk bara vel og við fórum eitthvað um rúmlega þrjú leytið.
Hef það ekki lengra í dag...nótt ... Þannig að planið er að hittast á morgun kl. 9:00
Bestu kveðjur, Erna Rós
...Hér eru nokkrar myndir sem ég fann á www.google.com, því ég er bara hér heima að blogga og er ekki með neinar skemmtilegar myndir
Vatnsberinn
Sæmundur á selnum
Jón Sigurðsson
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.